![]() |
![]() |
[ sýningar á kjarval ] ingimundur kjarval / malefnin.com / 2007 > |
Nú standa yfir þrjár sýningar með málverkum Jóhannesar Kjarvals listmálara. Sýningin fyrir börnin ekki til umræðu, lítið um hana að segja nema fallegt og þessi grein ekki á þeim nótunum. Báðar sýningarnar, Einars Garibalda Eiríkssonar á Kjarvalsstöðum og Ólafs Elíassonar í Kaupmannahöfn eru í raun ekki sýningar á myndum Kjarvals, listaverkin leiktjöld í sýningum um þá sjálfa. Nú hef ég hvoruga sýningu séð (búinn að sjá sýningu Einars Garibalda síðan) nema í gegnum linsu Kastljóssins sem eyddi lengri tíma í viðtal við Einar sjálfan en sýningarnar. Í Kaupmannahöfn var örtröðin víst svo mikil að horfði til vandræða en mér sagt að myndirnar hefðu tekið sig vel út og verið aðskilin frá verkum Ólafs sem var meðal annars íslenskur mosi sem lyktaði. Það skal viðurkennast að sýning Ólafs hlýtur að teljast kynning bæði á Íslandi og Kjarval, en breytir þó ekki þeirri staðreynd að myndirnar voru leiktjöld í höndum Ólafs til þess að sýna eigin verk. Örtröðin örugglega ekki vegna Kjarvals, afi minn ekki þekktur utan landsteinanna vegna þess að hann hefur ekki verið kynntur af Reykjavíkurborg þó borgin telji sig fjölskyldu hans, eða Listasafni Íslands þó að afi væri stofnandi þess safns, lagði til stofnféð með peningum sem íslenska þjóðin gaf honum í afmælisgjöf 1945 til þess að hann fengi þak yfir sig sem aldrei varð. Meðal annars vegna deilna á milli Fjár og Mennta málaráðuneytanna um hvort þeirra réði yfir framkvæmdunum. Húsið var aldrei byggt og á endanum bað Kjarval um að sjóðurinn rynni til málverkasafns Íslands sem var síðan stofnað með lögum nr. 41, 23. maí 1959 á Alþingi í nafni Kjarvals. Afi var á vergangi alla sína listamannatíð, svaf á vinnustofunni innan um nýgerð málverkin og terpentínuna sem lagði af þeim. Ein mín sterkasta minning frá heimsóknum til hans sem barn var lyktin af terpentínunni. Í dag er vitað að þessi upplausnarefni hafa skaðleg áhrif á taugakerfið, sjúkdómurinn nefndur eftir málurum. Hvort sem það var örsökin er það staðreynd að afi minn eyddi síðustu æviárum sínum á Geðdeild Borgarspítalans, lagður inn stuttu eftir að Reykjavíkurborg fjarlægði mest allt úr vinnustofu hans, svo stuttu áður að Kjarval fékk listann yfir hlutina 10. janúar 1669 og lagður inn áður enn mánuðurinn var úti Þessir hlutir meðal annars til sýningar á Kjarvalsstöðum. Einari Garibalda og stjórn Kjarvalsstaða er fullljóst að réttarhöld eru í gangi um eignarhaldið og undarlegt að ákveðið sé að standa í þessum svívirðingum á fjölskyldu minni á meðan að mínum dómi. Þeir sem ráða hinum opinbera listaheimi vilja skrifa sögu listarinnar, gleyma og breyta eins og valdinu er kært því í hag, þess vegna að listaverk Kjarvals eru orðin leiktjöld. Sama gerðist fyrir nokkrum árum með sýningu á íslenskri myndlist í Washington DC., þá var blandað saman gömlu meisturum og nútímalist. Tilgangurinn að nota þekktu myndlistina til að auglýsa óskabörnin í náðinni, enda sýndi það sig að þegar sýningin fór annað var þekktasti íslenski listmálarinn í Bandaríkjunum tekin úr sýningunni, auglýsingagildið horfið. Það er óhæfa að nota arfleið Íslands á þennan hátt, nútímalist hefur rétt á sér en verður að standa á eigin fótum, út í hött að nota listaverkeign þjóðarinnar sem leiktjöld fyrir nútímalistina sem valdið vill troða upp á okkur hvort sem við viljum eða ekki. Ég áfellist hvorki Einar né Ólaf, þeir gera auðvitað sem þeir vilja og frelsið þeirra, okkar að hafa skoðanir á því. Nei það sem hryggir mig og leiðir að bæði Reykjavíkurborg og Listasafn Íslands láni arfleið og gersemar þjóðarinnar í "leiktjöld". Hvað næst, sjáum við handritin í uppákomum? Þessar sýningar eru ekki listamönnunum til skammar heldur stofnunum sem lánuðu myndirnar. Þó verður að segjast að fyrstu viðbrögðin þegar ég sá sýningu Einars Garibalda voru viðbjóður og hryllingur. |
|
< | > | ||